Kennarar, sláum í merina..!

Nú ætti Eiríkur í KÍ að semja upp á afsköst kennaranna. Ef við útskrifum leikskólabarnið við sex ára aldurinn með staðið samræmt próf úr 10.bekk grunnskóla, ættum við ekki að gera kröfu um laun sem næmi 10 ára grunnskólakennarastarfi? ?

Nú,eða gunnskólakennarinn sem útskrifar 12 ára nemanda með staðið samræmt próf 10.bekkjar, ætti hann ekki að njóta verka sinna? ? Fá laun sem næmi þriggja ára grunnskólakennslustarfi í bónus?

Og framhaldsskólakennararnir, þeir nytu sömu kjara, árangurstengd laun... ef nemandinn lýkur stúdentsprófinu á tveimur árum, nýtur kennarinn /kennararnir ekki sömu kjara, bónuss sem næmi launum í tvö ár í viðbót?

Ég vissi ekki að læknar ynnu í akkorði?


mbl.is Læknar sem vinna miklu hraðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held að við ættum að byrja á að afnema heimskustu reglu allra sem er ekki starfsaldur, heldur aldur kennara í launastiga.  Heilmikill kennsluafsláttur og hærri laun fyrir að vera eldri er líklega einungis þekkt í kennarastéttinni.  Hvernig væri að taka til í eigin kistu áður en byrjað er að setja út á annarra?!

Freyr (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband