Alþingiskosningar innan tveggja vikna

Illa líst mér á kosningarnar framundan. Æ fleiri tala um að skila auðu. Og svo eru það þeir sem velja vinstri græna, til þess eins að tryggja að aðdragandi bankahrunsins verði kannaður til hlítar.

Gildur samfylkingarmaður lýsti því yfir í mín eyru núna fyrir helgina, að sér væri rétt sama um það hvort einhverjir aðilar/aðili suður á Spáni, eða annars staðar í Evrópu réðu því hverjir fengju að fiska á Íslandsmiðum og hvenær. Honum var bara skítsama.... gat ekki verið meira á sama, því að hans mati værum við Íslendingar búin að sýna fram á að við værum ófær með öllu að halda í sjálfstæði okkar, við værum of fá og upptekin við að skara eld að eigin köku, hvert okkar og eitt. Og hann er Vestfirðingur....! !

Evrópusambandið er fyrir mér eins og Mjólkursamsalan..... gagnvart Thor Jensen á Korpúlfsstöðum forðum daga. Og allar hugsanlegar undanþágur okkar frá regluveldinu munu verða tímabundnar.... að lokum kingjum við og kokgleypum. Það er ekki alls staðar velsældin í Evrópu...., ætli íbúar í Liege í Belgíu muni ekki tímana tvenna?

Það þarf mikið til að sannfæra mig um ágæti þess að hlaupa í faðm Evrópusambandsins. Hundsins míns vegna liggur leið mín alltof oft að minnisvarðanum um Erfðahyllnguna 28.júlí 1668....., Svo virðist sem við Íslendingar  missum sjálfsforræð okkar sem þjóð á 400 ára fresti, og þegar við endurheimtum það, þá dugar það ca hálfa öld, og allt byrjar upp á nýtt?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband